Þungbær og erfið niðurstaða

Geir H. Haarde þegar hann kom úr viðtali hjá Stöð 2 fyrr í kvöld. stækka

Geir H. Haarde þegar hann kom úr viðtali hjá Stöð 2 fyrr í kvöld.

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld, að sú niðurstaða Alþingis að höfða mál á hendur honum fyrir landsdómi sé þungbær og erfið. Geir sagði jafnframt, að málshöfðunin væri tilhæfulaus og hann myndi sýna fram á það.

Geir sagðist hafa vonað í lengstu lög, að Alþingi bæri gæfu að taka saksóknara- og ákæruvald sitt alvarlega en það hefði ekki orðið raunin heldur hefði pólitíkin tekið völdin, einkum innan Samfylkingarinnar þar sem nokkrir þingmenn hefðu hlaupið á milli aðila til að ákæra.

„Við því er ekkert að segja af minni hálfu," sagði Geir og bætti við að hann myndi tjá sig efnislega um þetta í réttarsalnum.

Geir sagðist jafnframt vega feginn því, að hinir ráðherrarnir þrír, sem þingsályktunartillaga meirihluta þingmannanefndar náði til, verði ekki ákærðir.  „Ég vil miklu frekar mæta einn og óstuddur fyrir landsdómi," sagði Geir.

Geir benti jafnframt á, að í ríkisstjórn hans hefðu setið tveir ráðherrar, sem enn sætu á æðstu valdastólum í ríkisstjórn. Annar, Össur Skarphéðinsson, hefði verið staðgengill utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir, núverandi forsætisráðherra, hefði farið með málefni Íbúðalánasjóðs. Það væri sérkennilegt að það fólk skuli sitja óáreitt eins og engum hefði dottið í hug að þau hefðu átt hlut að máli. 

En Geir sagðist ekki hefðu viljað ákæra nokkurn mann fyrir embættisverk sín í ríkistjórninni. og sagðist hann telja að hann sjálfur sé með fullkomlega hreinan skjöld. „Ég mun sanna það fyrir landsdómi og ég mun sýna fram á það þegar þar að kemur að þessi málshöfðun er fullkomlega tilhæfulaus. Hún er pólitískt upphlaup og jaðrar við pólitískar ofsóknir."

Geir sagði að það væri óeðlilegt að draga fyrrverandi ráðherra til refsiábyrgðar með þessum hætti. „Og það er ótrúlegt að þurfa að sitja fyrir framan sjónvarpið heima hjá sér og  hlusta á mann eins og Atla Gíslason og fleiri fjalla um fundi, sem ég sat á en ekki þeir og fara með tilhæfulaus ummæli og staðlausa stafi. Það er ótrúlegt að Alþingi setji mann eins og mig í þá aðstöðu að geta ekki komið á framfæri athugasemdum, leiðrétt vitleysur og komið sínum sjónarmiðum á framfæri," sagði Geir.

Sagði hann að sumt bæri með sér, að það hefðu verið pólitískir óvitar, sem sömdu ákæruskjalið og settu það í lögfræðilegan búning en ekki haft hugmynd um hvaða leikreglur hefðu tíðkast í pólitík og við ríkisstjórnarborðið áratugum saman. 

Þá sagðist Geir hafa verið hvatamaður að því árið 1995 að endurskoða mannréttindakafla stjórnarskrárinnar og þar væru meðal annars ákvæði um réttláta málsmeðferð og önnur réttindi, sem grunaðir menn eiga að njóta.

„Mér hefði aldrei nokkurn tímann komið til hugar, að eiga sjálfur eftir að lenda í þeirri aðstöðu að slík réttindi yrðu á manni brotin. Hvort það verður niðurstaða landsdóms mun koma í ljós. Ég ætla þó ekki að gera formið að aðalatriði í þessu en það eru efnisatriði í þessari ákæru, sem ég geri mjög miklar athugasemdir við og þeim mun ég mæta þegar þar að kemur." 

Í fréttum á Stöð 2 í kvöld sagði Geir, aðspurður hvort að þeir þingmenn sem greiddu atkvæði með ákæru á hendur honum ættu að segja af sér ef landsdómur sýknaði hann eða vísaði máli hans frá, að þeir yrðu að axla sína ábyrgð á því þegar þar að kæmi en þetta myndi allt taka langan tíma.

Geir sagði einnig að það væru ákveðin ofstækisöfl í þinginu og nefndi sérstaklega Steingrím J. Sigfússon sem hefði haft töglin og halgdirnar í þessu máli og gangrýndi framgöngu hans í málinu harðlega.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sparneytinn bíll óskast
Óska eftir að kaupa sparneytinn, óryðgaðan bíl á verðbilinu 200-500.000. Ekki e...
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
FÆST Á AÐEINS 10.000. UPPL. Í SÍMA. 8562418 Í DAG OG NÆSTU DAGA. ...
Sorptunnugrind
Sorptunnan lítur mun betur út og þú getur fest grindina við vegg eða stétt þanni...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...