Formleg leit að Andrési

Bíll af sömu gerð og bíll Andrésar.
Bíll af sömu gerð og bíll Andrésar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar nú eftir aðstoð almennings varðandi leitina af  Andrési Tómassyni og bifreið hans LZ-195.
Engar upplýsingar hafa komið fram um hvarf hans og Landsbjörg mun hefja formlega leit að Andresi á morgun. Allar upplýsingar eru vel þegnar í síma 444-1000.

 Síðast sást til Andrésar fyrir rúmri viku. Hann er 41 árs, hávaxinn og dökkhærður. Bíllinn er af gerðinni Suzuki Grand Vitara, árgerð 2003 og ljósbrún að lit.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert