Borgarafundur boðaður á Húsavík

Flaggað var í hálfa stöng við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á föstudag …
Flaggað var í hálfa stöng við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á föstudag eftir að fjárlagafrumvarpið var birt. mbl.is/Hafþór

Mikil gremja og reiði er meðal Þingeyinga með niðurskurðartillögur stjórnvalda til reksturs Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, samkvæmt frétt á vef verkalýðsfélagsins Framsýnar.

 Til að bregðast við þessum áformum verður boðað til borgarafundar næsta fimmtudag klukkan 17:00 í félagsheimilinu á Húsavík. Þingmönnum kjördæmisins, auk heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra, hefur verið boðið að sitja fundinn.

„Stéttarfélögin skora á Þingeyinga að fjölmenna á fundinn. Þá skora stéttarfélögin jafnframt á alla Þingeyinga, sem hafa aðgang að flaggstöngum, að flagga í hálfa stöng á fimmtudaginn og sýna þannig í verki samstöðu gegn þessum tillögum, sem munu verulega raska búsetuskilyrðum á svæðinu gangi þær eftir," segir á vef Framsýnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert