Björgvin í fjárlaganefnd

Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson.

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur sæti í fjárlaganefnd í stað Guðbjarts Hannessonar, sem nú hefur tekið við embætti félags- og heilbrigðismálaráðherra en Guðbjartur var formaður fjárlaganefndar.

Tilkynnt var í dag um margvíslegar mannabreytingar af hálfu Samfylkingarinnar í nefndum og ráðum á vegum Alþingis.  Björgvin mun einnig taka sæti í utanríkismálanefnd í stað Þórunnar Sveinbjarnardóttur, sem tekur sæti Guðbjarts í félagsmálanefnd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert