Heldur fjölgar á Austurvelli

Um 50-100 manns mótmæla á Austurvelli.
Um 50-100 manns mótmæla á Austurvelli. mbl.is/Árni Sæberg

Heldur hefur fjölgað í hópi mótmælenda á Austurvelli og eru nú á að giska 50-100 manns á vellinum, samkvæmt upplýsingum mbl.is. Töluvert er um ungt fólk og unglinga. Í dag voru mótmælin fámennari og voru oft á bilinu 10-30 manns á Austurvelli þá.

Mótmælin hafa farið friðsamlega fram. Þó hefur einni og einni jógúrtdós verið kastað í húsið. Sem fyrr er barið á olíutunnur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert