Fréttaskýring: Vilja hækka öll laun og tengja við aðra mynt

Krafa er komin fram frá forystu verkalýðsfélaganna um hærri laun til sinna félagsmanna. Myndin er ... stækka

Krafa er komin fram frá forystu verkalýðsfélaganna um hærri laun til sinna félagsmanna. Myndin er frá framkvæmdum á Lyngdalsheiði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Morgunblaðið Ómar Friðriksson omfr@mbl.is

Launafólk á almennum vinnumarkaði leggur verkalýðsforingjum línurnar þessa dagana um kröfugerð í komandi kjaraviðræðum. Stéttarfélög og sambönd hafa gert viðhorfskannanir meðal félagsmanna. Þá hafa forystumenn borið saman bækur sínar á formannafundum og kjararáðstefnum.

Rafiðnaðarsambandið hefur birt fyrstu niðurstöður könnunar sem byggð er á svörum 1.200 félagsmanna. Þar kemur fram að 40% vilja langtímakjarasamning í samfloti allra stéttarfélaga og ríkisstjórnar með stöðugleika sem helsta markmið, en meirihlutinn eða 60% vill stuttan kjarasamning og að sambandið semji sér.

„30% vilja leggja áherslu á hækkun lægstu launa, en 70% vilja leggja áherslu á að hækka öll laun. Í athugasemdum kom mjög skýrt fram vilji til að leggja alla áherslu á hækkun launa, en láta önnur kostnaðaratriði sem gætu dregið niður mögulegar launahækkanir eiga sig í þetta sinn,“ segir í umfjöllun RSÍ um könnunina. Umtalsverður meirihluti vill tengja kjarasamninga við annan gjaldmiðil.

Treysta kaupmáttinn

„Það er mikil áhersla á að hækka laun og menn lýsa miklum vilja sínum til að hækka lægstu launin meira en þau hærri,“ sagði Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, að nýafstöðnum formannafundi á Egilsstöðum. Mikil áhersla verður lögð í kjaraviðræðunum á að auka atvinnu og treysta kaupmáttinn. Í ályktun fundarins segir að meginmarkmið komandi kjarasamninga verði að stöðva svo fljótt sem verða má þá kjara- og kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur undanfarin tvö ár og endurreisa kaupmáttinn að nýju.

Kristján segir mikla samheldni í Starfsgreinasambandinu og menn séu ákveðnir í að ganga nokkuð samstiga til leiks.

Á kjararáðstefnu Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrr í mánuðinum komu fram ákveðnar kröfur um jöfnun lífeyrisréttinda á við opinbera starfsmenn, að lægsta skattþrep verði hækkað og barnabætur hækkaðar. Félagsmenn vilja stuttan samningstíma, að áhersla verði lögð á krónutöluhækkun og að grunnlaun verði ekki undir 200.000 kr., auk þess sem gengið verði frá því að laun verði verðtryggð.

Ríkisstjórnin einangruð

Það er hvass tónn í ályktun kjaramálaráðstefnu Samiðnar, sem fram fór í gær vegna undirbúnings kjaraviðræðnanna. 60 fulltrúar sátu fundinn og lýsa því yfir að ríkisstjórnin eigi að víkja takist ekki að leiða þjóðina úr efnahagsógöngunum. „Menn hafa þungar áhyggjur af atvinnuástandinu og því að það virðist ekkert ganga að koma nokkrum sköpuðum hlut af stað í okkar geirum,“ segir Finnbjörn Hermannsson formaður.

Spurður um áherslur félagsmanna fyrir kjaraviðræðurnar segir Finnbjörn að þeir vilji ná meiri kaupmætti. „Það er farið að þrengja verulega að heimilum og við viljum nota allan þann slaka sem til er í kjarasamningum til að hækka kaupmáttinn með launabreytingum og aðgerðum á borð við hækkun persónuafsláttar o.fl.,“ segir hann. Í ályktun Samiðnar segir að ríkisstjórnin hafi einangrast vegna skorts á samstarfsvilja og sundurlyndis stjórnarmeirihlutans. Óábyrg stjórnarandstaða hafi svo spilað á sundurlyndið og tafið mál.

Verkafólk með 238 þús.

Meðaldagvinnulaun verkafólks voru 238 þúsund kr. á mánuði í fyrra. Þá voru lágmarkslaun í landinu 157 þúsund en meðallaun allra starfsstétta 366 þúsund kr. Í nýútkomnu afmælisriti Starfsgreinasambandsins er bent á að laun afgreiðslu- og fiskvinnslufólks eru aðeins rúmlega 40 þús. kr. yfir lágmarkslaunum. Byrjunarlaun í fiskvinnslu, 900 kr. á tímann, eru borin saman við lágmarkslaun fiskvinnslufólks í Noregi, sem eru 123 norskar kr. á tímann. Það jafngildir um 2.400 íslenskum kr.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir
í skjólgóðri hlíð mót suðri í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Frábært útsýni. Heitt v...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...