Forsætisráðherra samfagnar fimleikakonum

Evrópumeistaralið Gerplu.
Evrópumeistaralið Gerplu. Fsí

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sent kvennaliði Gerplu í hópfimleikum hamingjuóskir með framúrskarandi og einstæðan árangur á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Malmö í Svíþjóð um helgina þar sem þær unnu til gullverðlauna.

Einnig sendi forsætisráðherra landsliði stúlkna í hópfimleikum hamingjuóskir með frábæran árangur þeirra í keppni landsliða á Evrópumótinu þar sem þær  höfnuðu í 3. sæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert