Stendur við útreikninginn

Menntaskólinn Hraðbraut er til húsa í Faxafeni. stækka

Menntaskólinn Hraðbraut er til húsa í Faxafeni. mbl.is/Ómar

Ríkisendurskoðun stendur við útreikning sinn á ríkisframlögum til Menntaskólans Hraðbrautar og telur að ekki hafi verið sýnt fram á hann sé rangur. Skólastjóri Hraðbrautar sagði við mbl.is í gær að allir útreikningar á framlögum til skólans, þ.m.t. útreikningar Ríkisendurskoðunar, hefðu verið rangir.

Í athugasemd frá Ríkisendurskoðun segir að  ríkisframlög til framhaldsskóla miðist við fjölda svokallaðra nemendaígilda. Á tímabilinu 2003–2009 hafi fjöldi nemendaígilda hjá Hraðbraut verið verulega undir áætlun. Skólinn hafi hins vegar fengið greitt miðað við áætlunina. Samtals hafi ofgreidd ríkisframlög til skólans numið 192 milljónum króna á tímabilinu, samkvæmt útreikningi Ríkisendurskoðunar sem birtur sé í greinargerðinni.

„Ríkisendurskoðun telur að ekki hafi verið sýnt fram á að útreikningur stofnunarinnar á ofgreiddum ríkisframlögum til Hraðbrautar sé rangur. Stofnunin stendur við þennan útreikning,“ segir í athugasemdinni.

Bent er á að framlög til Hraðbrautar byggist á þjónustusamningi skólans við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Eftir að greinargerð Ríkisendurskoðunar var birt hafi risið ágreiningur milli samningsaðila um túlkun á ákvæðum hans um fjárveitingar. Forsvarsmenn Hraðbrautar haldi því fram að samkvæmt samningnum hafi ríkið átt að greiða tiltekna fasta fjárhæð á ári til skólans vegna húsaleigu. Sé fallist á þetta sjónarmið lækki ofgreidd framlög til skólans um 10–15% miðað við útreikning í greinargerð Ríkisendurskoðunar.

Þá segir að ofgreidd framlög til Hraðbrautar hafi numið 126,1 milljón króna á tímabilinu 2004–2006. Forsvarsmenn Hraðbrautar og ráðuneytið hafi gert með sér samkomulag um að þessi skuld verði lækkuð um 92,1 milljón króna. Ríkisendurskoðun telji að ráðuneytið hafi ekki heimild til að gefa skuldina eftir.

Eftirlit verulega ábótavant

„Í greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að eftirliti með framkvæmd þjónustusamnings ráðuneytisins við Hraðbraut hafi verið verulega ábótavant. Fjárhagslegt uppgjör hafi aldrei farið fram þrátt fyrir skýrt ákvæði í samningnum.

Ríkisendurskoðun áréttar að mikilvægt er að stjórnvöld hafi virkt eftirlit með framkvæmd samninga sem þau hafa gert við aðila utan ríkiskerfisins og fela í sér fjárframlög í skiptum fyrir tiltekna þjónustu.

Ólíðandi er að þeir aðilar sem selja ríkinu þjónustu fái ofgreitt fyrir hana svo jafnvel muni tugum prósenta. Enn alvarlegra er ef slíkar ofgreiðslur uppgötvast ekki fyrr en mörgum árum eftir að stjórnvöld inntu þær af hendi,“ segir í athugasemdinni.

PDF-skrá Athugasemd Ríkisendurskoðunar með útreikningum.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Guðmundur Árnason.

Unglingspilts enn leitað

18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »
Ferðamenn leggja leið sína í Landmannalaugar jafn vetur sem sumar. Mynd úr safni

Ósáttur við að vera þjófkenndur

18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem var í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Rannsókn nauðgunarmála lokið

Egill Einarsson
15:31 Rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Meira »

Selur fylgist með skútunum

Myndarlegur selur heldur til við skútubryggjuna á Ísafirði.
14:52 Segja má að nýr hafnarvörður sé tekinn til starfa við skútubryggjuna á Ísafirði en þar hefur myndarlegur selur haldið sig síðustu daga. Selurinn tekur lífinu með ró og kippir sér lítið upp við umferð mannfólksins á höfninni. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Óljóst um hvað málið snýst

Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
15:06 „Hvað það varðar að við komum að þessu aftur þykir mér það alls ekki afleit hugmynd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem sæti átti í stjórnlagaráði á síðasta ári, en Alþingi ákvað í gær að vísa frumvarpi ráðsins að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Meira »

Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi

Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar skrifuðu undir samning ...
14:25 Í hádeginu í dag skrifuðu þeir Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Föt á flottar konur, Silfur - Hlaðan
Erum staðsett í Bjallavaði póstsvæði 110. Endilega hafið samband í síma 866 4030...
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997 TIL SÖLU. BÍLLINN ER Á GÓÐUM NAGLADEKKJUM OG ÞAÐ FYLGJA SU...
Til sölu 19" Palladine flatskjár
Til sölu mjög vel með farið sjónvarp með veggfestinu Palladine 19" 12/220 V, fyl...
Góð skrifstofuhæð við Ármúla til leigu.
540 ferm að flatarmáli, má skipta í tvær einingar. 13 herbergi og almennt vinnur...
 
Stúkan fjölnir
Félagsstarf
l FJÖLNIR 6012022119 I...
Sýslumaðurinn í borgarnesi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bækur til sölu

Bækur til sölu Jarðatal á Íslandi 1847 ...
Opinn fundur
Fundir - mannfagnaðir
Opinn fundur um umferðar- og skip...