Kaupmáttur minnkar

Launavísitala í október  hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Vísitala kaupmáttar launa í október  lækkaði hins vegar um 0,5% frá fyrri mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6% en á sama tímabili hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,6%. Sú vísitala er samspil vísitölu launa og vísitölu neysluverðs.

Frá janúar 2008 hefur vísitalan fimm sinnum hækkað milli mánaða, í júlí og nóvember á síðasta ári, og síðan nú í júlí, ágúst og september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert