Hætt að draga úr heimilissorpi

Sorpið hefur jafnan endurspeglað þróunina í efnahagslífinu.
Sorpið hefur jafnan endurspeglað þróunina í efnahagslífinu. mbl.is/Friðrik

Sorpvísitalan er ekki enn farin að vísa upp á við til marks um bjartari tíð efnahagsmálum. Svipað magn af heimilissorpi berst nú til móttökustöðvar Sorpu frá mánuði til mánaðar eftir stöðugan samdrátt í rúm tvö ár.

Sorpið hefur jafnan endurspeglað þróunina í efnahagslífinu og neyslu heimilanna.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, stöðvarstjóri móttökustöðvar Sorpu í Gufunesi, segir í Morgunblaðinu í dag, að stöðug aukning hafi verið á sorpi fram á árið 2008, eða þangað til gengið fór að falla fyrir alvöru. Síðan hefur verið stöðug minnkun. „Það hefur orðið um 5% samdráttur hjá okkur á þessu ári. Það minnkar enn frá fyrirtækjum en heimilissorpið virðist komið í jafnvægi.“


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert