PwC: Ábyrgðin hjá stjórnendum bankanna

Embætti sérstaks saksóknara
Embætti sérstaks saksóknara mbl.is/Golli

PwC segir í yfirlýsingu vegna endurskoðun félagsins á ársreikningum Landsbankans og Glitni fyrir árið 2007 að það séu stjórnendur bankanna, þ.m.t. stjórnir og bankaráð, sem bera ábyrgð á uppgjörum þeirra. Sú ábyrgð er bæði lagaleg og samfélagsleg.

„Vinnugögnum Sérstaks saksóknara og ályktunum um meinta sakarannsókn á hendur PricewaterhouseCoopers ehf (PwC) vegna endurskoðunar félagsins á ársreikningum Landsbankans og Glitnis fyrir árið 2007, hefur verið haslaður völlur í fjölmiðlum. Í ljósi þess telur fyrirtækið óhjákvæmilegt að svara fyrir sig á sama vettvangi og veita fjölmiðlum upplýsingar um endurskoðun sína á Landsbankanum og Glitni eins og framast er unnt samkvæmt lögum.

Í samræmi við þessa stefnu mun PwC birta samantekt um skýrslur fyrirtækjanna Cofisys og Lynx Advokatfirma þegar búið er að fara í gegn um skýrslurnar en PwC hefur enn ekki fengið aðgang að fylgigögnum þeirra. Ljóst er að skýrslurnar eru ófullgerð vinnugögn enda margtaka skýrsluhöfundar fram að ályktanir þeirra séu dregnar með verulegum fyrirvörum og þurfi að sannreyna frekar.

Sérstaklega er varað við því að niðurstöður þeirra séu lagðar til grundvallar frekari rannsókn án þess að fram fari nánari athugun á forsendum. Ekki hefur í öllum tilvikum verið hirt um að halda fyrirvörum Cofisys og Lynx Advokatfirma til haga í umfjöllun fjölmiðla, enda þótt þau séu lykilatriði í málinu og geti breytt því í grundvallaratriðum þegar skýringa hefur verið leitað hjá stjórnendum viðkomandi banka eða endurskoðendum þeirra.

Viðurkennt er að skýrsluhöfundar höfðu takmarkað aðgengi að gögnum og skoðuðu meðal annars ekki frumgögn úr bönkunum sjálfum. Fram kemur að þeim hafi ekki verið heimilað að hafa samband við stjórnendur bankanna eða endurskoðendur. Þá er ekki tekið tillit til þess að í vinnuskjölum PwC liggja m.a. fyrir skriflegar staðfestingar frá stjórnendum og stjórnarmönnum bankanna um ýmis atriði er snerta mat á stöðu þeirra, enda hefur ekkert verið rætt við starfsfólk PwC af hálfu rannsóknaraðila.

PwC minnir á að það eru stjórnendur bankanna, þ.m.t. stjórnir og bankaráð, sem bera ábyrgð á uppgjörum þeirra. Sú ábyrgð er bæði lagaleg og samfélagsleg. Stjórnendur leggja ársreikninga fram og gefa út viðamiklar skriflegar staðfestingar til endurskoðenda um réttmæti upplýsinga. Slíkar yfirlýsingar, ásamt öðrum endurskoðunargögnum, liggja fyrir í vinnuskjölum PwC og verða lagðar fram á réttum vettvangi.
PwC telur sjálfsagt og eðlilegt að uppgjör bankanna, sem féllu haustið 2008, og endurskoðun á þeim komi til skoðunar eins og önnur atriði er tengjast bankahruninu. Jafn sjálfsagt er að öll málsmeðferð í því sambandi sé vönduð og hafin yfir vafa," segir í yfirlýsingu sem PwC hefur sent frá sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert