Festu bíl í Víkurskarði

Lögreglan á Akureyri aðstoðaði fólk sem festi bíl sinn í Víkurskarði í nótt. Tilkynning barst um fólkið um kl. 4.30 í morgun. Lögreglan fór upp og tókst að losa bílinn og fylgdi honum niður á Svalbarðsströnd. Þar gafst bíllinn upp og fékk fólkið far heim til sín.

Mjög blint var í Víkurskarði í morgun. Lögreglan ræddi við mann sem var að ryðja veginn um klukkan 7 í morgun og þá sá hann varla meter frá bílnum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert