Einn starfsmanna Landsbanka yfirheyrður

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. mbl.is/Ómar

Landsbankinn segir, að einn núverandi starfsmanna dótturfélags Landsbankans hafi í gær verið færður til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara. Segir bankinn að staðfestar upplýsingar þess efnis hafi ekki borist forsvarsmönnum Landsbankans  fyrr en undir kvöld í gær.

„Engin húsleit hefur verið gerð í húsakynnum bankans en Landsbankinn hefur frá upphafi lagt sig fram um að eiga gott samstarf við sérstakan saksóknara og látið hann hafa öll þau gögn sem hann hefur óskað eftir. Landsbankinn mun aðstoða saksóknara eins og kostur er við rannsókn þessara mála sem nú hafa verið nefnd verði eftir því leitað," segir í tilkynningu frá bankanum.

Sjö einstaklingar voru færðir til yfirheyrslu í gær og í gærkvöldi krafðist sérstakur saksóknari gæsluvarðhalds yfir fyrrverandi bankastjóra og fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum.  Héraðsdómari mun taka afstöðu til kröfunnar eftir hádegið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert