Þingmenn vissu ekki um tölvuna

Frá Alþingi. stækka

Frá Alþingi.

Þingmenn höfðu ekki vitneskju um að fartölva hefði fundist  í auðu herbergi í húsnæði á vegum Alþingis við Austurstræti í febrúar í fyrra. Fram kom í Morgunblaðinu í dag, að grunur léki á að tölvunni hefði verið komið fyrir til þess að brjótast inn í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis, hlaða niður gögnum og senda í aðra tölvu.

Þingmenn ræddu málið í upphafi þingfundar í dag. Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að þetta væri mjög alvarlegt mál og hún krafðist þess að tekin yrði um það sérstök umræða í þinginu. Spurði hún hvort forseta Alþingis hefði verið kunnugt um þessa atburði og lögreglurannsókn sem fylgdi í kjölfarið.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vildi vita hvers vegna þingmönnum hefði ekki verið greint frá þessu og spurði einnig hvort þingmenn gætu treyst því að gögn þeirra væru öruggt. „Stóð til að láta okkur vita af þessu?" spurði hún.

Grófasta árás sem Alþingi hefur orðið fyrir

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að svo virtist sem um væri að ræða grófustu árás sem Alþingi hefði orðið fyrir í sinni sögu.  Þá sagði hann, að það vekur grundsemdir, að þessi tölva hafi fundist í skrifstofuhúsnæði Hreyfingarinnar en einn þingmaður hennar hefði haft náin tengsl við uppljóstrunarvefinn WikiLeaks.

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði fráleitt að beina grunsemdum að tilteknum þingflokki og þingmönnum. „Ég held að þingmaður eigi að halda munni,“ sagði hann og beindi orðum sínum til Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins .Sagði Mörður að forseti Alþingis ætti að íhuga að víta þá þingmenn sem beindu svona ásökunum að öðrum.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagðist sammála því að um væri að ræða mjög alvarlegt mál. Hann mótmælti orðum Sigurðar Kára og benti á að Sjálfstæðisflokkurinn væri einnig með skrifstofur í umræddu húsi. Hann sagði, að formaður Sjálfstæðisflokksins hefði verið látinn vita af málinu þegar í febrúar.  Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, sagði í umræðunni að þetta væri alrangt.

Alvarlegt mál eða stormur í vatnsglasi

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagðist velta því fyrir sér hvort um væri að ræða alvarlegt mál eða storm í vatnsglasi. Aðalatriðið væri að upplýst hefði verið á fundi forsetanefndar Alþingis í vetur að engin ummerki væru um að brotist hefði verið inn í tölvukerfi Alþingis.  Sagði hún umræðurnar um málið í morgun bera merki um paranoju.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði að hún hefði rætt málið á fundi með þingflokkum í morgun og myndi gera þinginu grein fyrir málinu með formlegum hætti klukkan 14 í dag.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að hafi verið gerð tilraun til að brjótast inn í tölvukerfi Alþingis væri það grafarleg árás á þingið.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði að daglega væri lesið um tilraunir tölvuþrjóta til að brjóta sig inn í tölvukerfi víða um heim. „Þetta er hluti af nýjum raunveruleika sem við verðum að sætta okkur við," sagði Össur.  Hann sagðist hafa unnið á þingi með þingmönnum Hreyfingarinnar og bæri það mikla virðingu fyrir greindarstigi þeirra að þeir væru ekki svo miklir kjánar að taka þátt í slíku.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki vera sammála Össuri um að þetta væri hluti af nýjum veruleika, sem menn yrðu að sætta sig við. Þetta er óviðunandi. Þegar komnir væru flugumenn inn á Alþingi væri það svo grafalvarlegt að nota verði öll tiltekin ráð til að rannsaka það.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj., 3-5 svefnherb, 1-...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...