Landhelgisgæslan verði flutt í Reykjanesbæ

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF LIF.
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF LIF. mbl.is/Kristinn

Allir tíu þingmenn Suðurkjördæmis og allir oddvitar meirihluta og minnihluta í sveitarstjórnum á Suðurnesjum, hafa sent Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, bréf þar sem skorað er á stjórnvöld að taka ákvörðun um flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. 

„Með flutningi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja myndi ríkisvaldið sýni í verki stuðning sinn við eflingu atvinnulífs á Suðurnesjum auk þess að gera Landhelgisgæsluna að enn öflugri stofnun til hagsbóta fyrir landsmenn alla," segir m.a. í bréfinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert