Siglfirðingur vinnur milljónir

Heppinn viðskiptavinur Siglósport á Siglufirði er tæplega 16 milljónum króna ríkari í kvöld en bónusvinningur í Víkingalottóinu sem dreginn var út í kvöld kom á miða sem seldur var þar.

Vinningsupphæðin er alls 15.860.410 krónur en vinningshafinn situr einn að bónuspottinum. Þá voru fjórir sem deildu með sér fyrsta vinningi, einn Dani, einn Finni og tveir Norðmenn. Hver þeirra fær rúmlega 138 milljónir króna í sinn hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert