Skokkarinn gaf sig fram

Frá Hveragerði.
Frá Hveragerði. Rax / Ragnar Axelsson

Eins og fram kom í fréttum í dag var ráðist á dreng í Hveragerði í gær.  Maðurinn sem í hlut átti, og var að skokka er þetta gerðist, sig sjálfur fram fljótlega eftir að lýst var eftir upplýsingum um málið í fjölmiðlum. 

Hann mætti til skýrslutöku hjá lögreglu á Selfossi og skýrði mál sitt.  Maðurinn, sem býr á höfuðborgarsvæðinu, hafði gert sér ferð í Hveragerði til að skokka þar um götur sér til heilsubótar, en annað er ekki tekið fram í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert