Undirskriftir gegn Icesave

Merki síðunnar Kjósum!
Merki síðunnar Kjósum!

Undirskriftasöfnun gegn nýju Icesave-frumvarpi er hafin á netinu á vefsíðunni kjosum.is. Undirskriftirnar eru orðnar nærri 2.500 talsins.

Þar kemur  fram að samtökin Samstaða gegn Icesave standi á bak við undirskrifasöfnunina. Það eru „samtök fjölmargra sem stofnuð eru til þess að berjast gegn því að Ríkissjóður Íslands taki á sig ábyrgð á Icesave- innlánsreikningum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi.

Samtökin hafa hrint af stað undirskriftasöfnun til að skora á forseta Ísland að staðfesta ekki ný lög sem fela í sér ábyrgð ríkissjóðs á Icesave og vísa þeim til þjóðarinnar,“ eins og segir á vefsíðunni.

Hópurinn sem stendur að baki Samstöðu þjóðar verður kynntur á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu á mánudaginn kemur kl. 11.00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert