Erfitt og flókið mál

Ólafur Ragnar Grímsson tekur við undirskriftunum á Bessastöðum í dag.
Ólafur Ragnar Grímsson tekur við undirskriftunum á Bessastöðum í dag. mbl.is/Ómar

Forsvarsmenn vefsíðunnar kjósum.is afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, klukkan 11 í morgun undirskriftir tæplega 41.000 Íslendinga sem skrifuðu undir áskorun þess efnis að forsetinn synjaði lagafrumvarpi um ríkisábyrgð á Icesave samningunum og að þjóðin fengi að úrskurða um málið.

Undirskriftirnar voru afhentar á Bessastöðum klukkan 11 í morgun og við þetta tækifæri sagði Ólafur Ragnar að um afar erfitt og flókið mál væri að ræða. Hann sagðist eiga von á að taka sér nokkurra daga umhugsunarfrest, Alþingi hefði varið vikum og mánuðum í að ræða það og ekki væri hægt að ætlast til þess að forsetinn væri fljótari að hugsa.

Ólafur Ragnar spurði út í þá aðferðafræði sem beitt hefði verið við söfnunina og hvernig undirskriftirnar hefðu verið sannreyndar.

Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar sögðu að hringt hefði verið í slembiúrtak 100 manna, sem skrifað hefðu undir til að kanna réttmæli undirskriftanna. Æskilegt hefði verið að hafa samban d við fleiri, en til þess hefði ekki unnist tími.

Afhentar voru þær undirskriftir sem safnast höfðu í gærmorgun og höfðu verið sannreyndar, en þær voru um 38.000 talsins. Auk þess voru afhentar undirskriftir sem hafa borist síðan þá og hafa ekki verið sannreyndar og voru þær samtals um 41.000.

Að lokinni afhendingu undirskriftanna, settust forsvarsmenn undirskriftasöfnunarinnar að fundi með Ólafi Ragnari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert