Olía á land í vestanverðum firðinum

Olíuflekkur við Sandey í Óslófirði. Myndin er af vef norsku …
Olíuflekkur við Sandey í Óslófirði. Myndin er af vef norsku siglingastofnunarinnar.

Olíu hefur orðið vart á ströndum beggja vegna Óslófjarðar í morgun, að sögn norsku siglingastofnunarinnar. Flogið hefur verið í nótt og morgun yfir svæðið þar sem Goðafoss strandaði á fimmtudagskvöld.  Ekki er ljóst hvenær reynt verið að ná skipinu af strandstað.

Fram kemur í norskum fjölmiðlum, að olía hafi sést við Færder og víðar, vestanmegin í Óslófirði. Ekki er ljóst hve olíubrákin er þykk. Nokkrir dauðir olíublautir sjófuglar hafa sést við strendur fjarðarins. 

Norska siglingastofnunin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14 að íslenskum tíma í dag. 

Eimskip hefur þegar gert ráðstafanir vegna slyssins og hefur félagið leigt skip til að sinna verkefnum Goðafoss.

„Það er annað skip komið í rútu fyrir Goðafoss og fyllir upp í það skarð sem skapast á meðan hann er ekki siglingarhæfur. Það er eitt skip núna á leið til Evrópu og mun halda þessari rútu áfram,“ segir Ólafur.

Ljóst er að Eimskip mun bíða mikið tjón af slysinu. Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, segir að tjónið hlaupi sennilega á tugum milljóna hið minnsta. Fjárhagslegt tjón vegna slyssins er þó ekki efst á baugi hjá Eimskip, að sögn Ólafs.

„Við einbeitum okkur fyrst og fremst að því að koma í veg fyrir umhverfisslys og að starfsfólk okkar og áhöfn sé örugg.“ 

Norska strandgæslan, Eimskip og umhverfissamtök hafa unnið saman að björgunaraðgerðum. Eimskip sendi fjóra fulltrúa til Fredrikstad í gærmorgun. Norska strandgæslan hefur yfirumsjón með aðgerðum sem snúa að verndun náttúrunnar á staðnum. Ólafur segir samstarfið hafa gengið vel.

„Allur þessi hópur er að vinna saman eins og vel þjálfuð hljómsveit, það eru allir að spila í takt.“

Norskt björgunarfyrirtæki undirbjó í gær áætlun um hvernig hægt yrði að bjarga skipi og farmi. Áður en hafist verður handa þurfa yfirvöld í Noregi að yfirfara slíkar áætlanir og gæti það orðið fyrir hádegi í dag. Siglingaleiðin þar sem Goðafoss strandaði er opin, en sjófarendum er bent á að fara með gát.

Um 800 tonn af olíu voru í tönkum Goðafoss og virðist leki hafa komið að tveimur tönkum miðskips og jafnvel þeim þriðja. Eins og áður greinir voru tvær olíugirðingar settar umhverfis skipið í gær. Sú þriðja var til taks.

Í gær var verið að meta hvort og hvenær gámarnir yrðu fluttir frá borði. Norska siglingastofnunin aflaði í gær upplýsinga um hvaða farmur er í gámunum.

Goðafoss á strandstað í gær.
Goðafoss á strandstað í gær. Skanpix
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert