Segir að stöðva þurfi græðgisvæðinguna

Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að íslensk alþýða verði að rísa upp og stöðva þá græðgisvæðingu sem sé í gangi. Hann vísar þar sérstaklega til upplýsinga um laun bankastjóra Arion banka.

Vilhjálmur bendir á á heimasíðu félagsins að laun bankastjóra Arion banka séu 4,3 milljónir á mánuði sem sé 145% hækkun frá þau launum sem bankastjóri bankans var með árið 2008.

„Þessar hækkanir áttu sér stað á sama tíma og íslenskir launþegar voru þvingaðir til að fresta og afsala sér hluta af sínum launahækkunum samhliða stöðugleikasáttmálanum sáluga vegna efnahagshrunsins. Það er ekki bara að fréttir af þessum ofurlaunum birtist íslensku launafólki þessa dagana, heldur var fyrir örfáum dögum síðan kynnt vegleg hækkun til héraðs- og hæstaréttadómarar sem nam rúmum 100.000 kr. á mánuði. Núna gera Samtök atvinnulífsins þá kröfu á íslenska launþega að þeir gangi frá afar hófstilltum kjarasamningum til að mæta efnahagsvanda íslensks atvinnulífs. Gangi það eftir verða mánaðarlegar hækkanir um eða undir 10.000 kr. á mánuði. Með öðrum orðum, enn og aftur á það að vera íslenskt launafólk sem á að slá af sínum kröfum á meðan einstakir hópar geta skammtað ríflega sín launakjör svo nemur hundruðum þúsunda króna hækkun á mánuði.

Nú held ég að sé komið að algjörri ögurstundu hjá alþýðu þessa lands og nú þurfi hún að rísa aftur upp og það með afgerandi hætti. Því það er alveg ljóst að það er stefnt leynt og ljóst að því að taka að nýju upp gömlu gildin, gildin sem lutu að græðgi, sérhagsmunagæslu og hroka í garð almennings. Á þeirri forsendu er það alþýða þessa lands sem þarf að sjá til þess að græðgisvæðingin nái ekki aftur að skjóta rótum í okkar samfélagi, það er búið að níðast nóg á almenningi í þessu landi og við vitum hvað þarf til að stjórnvöld og bankastjórnendur hlusti á almenning í þessu landi. Nú þarf að dusta rykið af búsáhöldunum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert