Styður ekki lengur ríkisstjórnina
Ásmundur Einar Daðason, lengst til hægri á myndinni, sagðist í kvöld ekki lengur styðja ríkisstjórnina. mbl.is/Kristinn
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, lýsti því yfir á Alþingi í kvöld, að hann styddi ekki lengur ríkisstjórn sem héldi áfram umsóknarferlinu vegna Evrópusambandsins.
„Niðurstaða mín er því sú, að ekki sé skynsamlegt að halda áfram þessu Evrópusambandsferli og ég styð ekki lengur ríkisstjórn sem heldur þessu ferli áfram af jafnmiklum þunga og raun ber vitni," sagði Ásmundur Einar í umræðum um vantraust á ríkisstjórnina.
Hann rifjaði upp, að hann hefði setið hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið og lýst því yfir, að stuðningur sinn við ríkisstjórnina væri skilyrtur. Snúa þyrfti af þeirri braut í Evrópumálum, sem ríkisstjórnin væri á og sem væri gróft brot gegn stefnu VG.
Þá sagði Ásmundur Einar að Icesave-samningarnir væru beintengdir við Evrópusambandsumsóknina. Hann vísaði til orða Atla Gíslasonar fyrr í umræðunni í dag, um að þetta væri fullveldisbarátta og því gæti hann ekki annað en stutt vantrauststillöguna.
„Þetta snýst um að vega og meta og velta því fyrir sér hvort nú sé komið yfir einhverja línu sem dregin hefur verið. Ég hef haft skilyrtan stuðning við þessa ríkisstjórn. Er betra að vera áfram innan stjórnarliðsins og styðja þessa ríkisstjórn eða er betra að stöðva þetta ferli og segja hingað og ekki lengra í þessu máli?" sagði Ásmundur Einar. Hann sagði, að Íslendingar ættu að forgangsraða upp á nýtt og leggja þessa aðildarumsókn til hliðar.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem tók til máls á eftir Ásmundi Einari, sagði að síðasti ræðumaðurinn hefði stolið af sér orðinu og þetta væru mikil tíðindi að hann styddi ekki lengur ríkisstjórnina. Það sýndi, að vantrauststillagan, sem sjálfstæðismenn lögðu fram, væri rétt og tímabær.
Bloggað um fréttina
-
Tryggvi Marteinsson 13. apríl 2011 - Nú má fólkið ekki kjósa um ... -
Haraldur Haraldsson Styður ekki lengur ríkisstjórnina/er nokkur hissa að komi fram maður ... -
Jón Ingi Cæsarsson Veiklundaður og skilningsvana. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Er betri stjórnarandstaðan í skógi en stjórnin í hendi? -
Bergþór Heimir Þórðarson Klapp, klapp, klapp -
Magnús Helgi Björgvinsson Þetta verður grafskrift Ásmundar Einars í Pólitík -
Sigurður Haraldsson Takk. -
Guðni Helgason Hvað gerir Guðfríður Lilja? -
Jóhann Elíasson ÞETTA VERÐUR TVÍSÝNT.................................... -
Viggó Jörgensson Farðu nú heim Steingrímur. -
Gunnar Heiðarsson Línur að skýrast innan VG
Innlent »
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent Spáir flóði vantraustsyfirlýsinga
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Ásmundur Einar úr þingflokknum
- Fimmtudagur, 11. nóvember 2010, Innlent Hótað embættismissi
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Taka Ásmundi Einari fagnandi
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent „Farið hefur fé betra“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































