Tala um gíslatöku LÍÚ

Gylfi Arnbjörsson og Vilhjálmur Egilsson í Karphúsinu, áður en slitnaði upp úr viðræðum. stækka

Gylfi Arnbjörsson og Vilhjálmur Egilsson í Karphúsinu, áður en slitnaði upp úr viðræðum. mbl.is/Golli

ASÍ segir að LÍÚ hafi tekið Samtök atvinnulífsins í gíslingu til að þvinga fram niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem væri útgerðaraðlinum í landinu þóknanleg. „Þetta er ofbeldi og vinnubrögð sem eru LÍÚ til vansa. Þetta framferði varð að lokum til þess að sú vegferð um þriggja ára samning, sem SA hóf sjálft í byrjun árs, rann út í sandinn í dag,“ segir í yfirlýsingu frá ASÍ.

 ASÍ segir í upphafi þeirra kjaraviðræðna sem staðið hafa undanfarna mánuði hafi Samtök atvinnulífisins lagt ríka áherslu á að gerður yrði kjarasamningur til þriggja ára. Rökin hafi verið þau að slíkur samningur myndi skapa stöðugleika sem nauðsynlegur væri á vegferð þjóðarinnar út úr mestu kreppu síðari tíma á Íslandi. Þetta hafi verið kallað atvinnuleiðin. „Þrátt fyrir takmarkaðan áhuga ASÍ og aðildarsamtaka þess í fyrstu á langtíma samningi, vegna óvissu í efnahagsmálum, var ákveðið að hefja viðræður á þessum nótum og skoða hvað áynnist.

Fljótlega eftir að viðræður hófust kom í ljós að Samtök atvinnulífsins gerðu það að skilyrði fyrir gerð kjarasamninga, að niðurstaða fengist í sjávarútvegsmálum. SA vildi ekki einungis tryggja lausn í sjávarútvegsmálum, heldur náði krafan einnig til þess að lausnin væri SA og LÍÚ þóknanleg. Samninganefnd ASÍ var ekki reiðubúin að setjast að viðræðum á þessum forsendum og sleit viðræðum. Umræða um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafa ekkert með almennar kjaraviðræður á Íslandi að gera. ASÍ og aðildarsamtök þess hafa skoðanir á sjávarútvegsmálum en það hefur aldrei komið til greina hjá Alþýðusambandinu að styðja kröfur SA og LÍÚ varðandi breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.Viðræður hófust aftur í febrúar eftir að miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun þar sem áréttað var að SA bæri samkvæmt landslögum að standa undir þeirri frumskyldu sinni að ganga til kjarasamninga. Sjávarútvegsmálin vofðu þó enn yfir.

LÍÚ var með kverkatak á kjaraviðræðunum. LÍÚ tók 100 þúsund félagsmenn ASÍ í gíslingu. LÍÚ sem er eitt af átta aðildarfélögum SA tók sín eigin samtök í gíslingu og þar með stóra aðila eins og Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar. Allt var þetta gert til að þvinga fram niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem væri útgerðaraðlinum í landinu þóknanleg. Þetta er ofbeldi og vinnubrögð sem eru LÍÚ til vansa. Þetta framferði varð að lokum til þess að sú vegferð um þriggja ára samning, sem SA hóf sjálft í byrjun árs, rann út í sandinn í dag.

Rökin sem SA lagði upp með, að þjóðarheill krefðist langtímasamnings, véku á endanum fyrir hagsmunum LÍÚ. Það er dapurleg niðurstaða. SA beit svo höfuðið af skömminni með því að ganga á bak orða sinna og svíkja undirritun skammtímasamnings sem lá á borðinu og fresta þannig launahækkun hjá okkar fólki,“ segir í yfirlýsingu ASÍ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
KEBEK NAMA HEILSÁRSDEKK
Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. ...
NUDD EF ÞÚ ERT MEÐ VÖÐVABÓLGU.
SLEN OG SVEFNLEYSI STAFAR OFT AF VERKJUM Í SKROKKNUM. NUDD GETUR BÆTT ÁSTANDIÐ. ...
Palomio Yearling 10 feta fellihýsi
Palomio Yearling 100 fellihýsi Árgerð 2007 10 feta Fortjald, svefntjöld, sóla...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....