Fór konuvillt

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar.

Ein líkamsárás var kærð til lögreglu í Vestmanneyjum eftir skemmtanahald páskahátíðarinnar en hún átti sér stað á veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt annars í páskum.

Karlmaður sló þar konu þannig að hún fékk sár á enni og einnig reif maðurinn í hár hennar. 

Lögreglan segir, að ekki liggi fyrir hver ástæða árásarinnar hafi verið, en flest bendi til þess að maðurinn hafi farið konuvilt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert