Ísbjörn á Hornströndum
Ísbjörn sást í fjörunni í Hælavík á Hornströndum rétt fyrir klukkan níu í morgun. Það var áhöfn fiskibáts sem sá björninn og tilkynnti þegar um hann.
„Það var sjómaður sem var þarna fyrir utan sem sá dýrið í fjörunni og hverfa síðan í þokuna. Það er þoka niður í miðja hlíðar,“ sagði Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, í samtali við mbl.is. Tilkynningin kom rétt um kl. 9.
Önundur sagði að nú væri unnið að því að setja þá aðila í viðbragðsstöðu sem eiga að koma að svona máli, en til eru starfsreglur um viðbrögð þegar fréttist af ísbjörnum. Allmargar stofnanir koma að málinu, m.a. Umhverfisstofnun, ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæsla og fleiri.
Önundur sagði dálítið óþægilegt að vita ekki hvar dýrið er. „Svona dýr skokkar auðveldlega 50 km. á dag. Það er þoka á svæðinu sem þýðir að björninn getur verið kominn upp að hliðinni á manni áður en hann veit af.“
Önundur sagðist hafa áhyggjur af tveimur mönnum sem eru á þessu svæði. Þeir fóru í land með bát snemma í morgun og ætluðu að ferðast um. „Þeir sem settu þá í land eru að reyna að hafa samband við þá. Það er ekkert GSM-samband þarna nema á takmörkuðu svæði.“
Önundur sagði ekkert ákveðið enn hvað gert yrði ef dýrið finnst. Það kæmi til greina að fella það, handsama en eins gæti verið að það kæmi sér sjálft í burt. Dæmi væri um að ísbirnir sem komið hefðu til Vestfjarða hefðu komið sér sjálfir í burt.
Að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar fer þyrla Gæslunnar vestur innan tíðar til að athuga málið.
Málið er í höndum Umhverfisstofnunar og lögreglu sem mun taka ákvörðun um framhaldið.
Að sögn Kristins Más Ársælssonar, upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar, hefur verið haft samband við þá ferðamenn sem vitað er um á svæðinu. Þeir sem vita af ferðum fólks á þessum slóðum eru beðnir um að láta lögregluna á Vestfjörðum vita.
Bloggað um fréttina
-
Bjarne Örn Hansen Ósómi Björn Látinn, en Berrakaður Ölþambi en á sveimi ... -
-
Mats Wibe Lund Látum ísbjörnin vera við fætur Jóns Gnarr í Tjörninn -
Valdimar Samúelsson Ekkert væl núna en gæslan eða næsti skotveiðimaður verður að ... -
Haraldur Haraldsson Ísbjörn á Hornströndum !!!! vonandi rétta ekki tálsýn!!!! -
Torfi Kristján Stefánsson Drepum hann, drepum hann!!!
Innlent »
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 2. maí 2011, Innlent Hressilegur hvítabjörn
- Mánudagur, 2. maí 2011, Innlent „Stofnum ekki mönnum í hættu“
- Mánudagur, 2. maí 2011, Innlent Ísbjörninn kominn til Reykjavíkur
- Mánudagur, 2. maí 2011, Innlent Ísbjörninn fluttur til Reykjavíkur
- Miðvikudagur, 11. maí 2011, Innlent Engin ísbjarnaspor
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi





































