Norðmenn vilja endurskoða Schengen

Norskir lögreglumenn segja stóran hluta af skipulagðri glæpastarfsemi í Noregi …
Norskir lögreglumenn segja stóran hluta af skipulagðri glæpastarfsemi í Noregi eigi rætur að rekja í Eystraltsríkjunum.

Norska lögreglan vill að Schengen-samningurinn verði endurskoðaður. Segir lögreglan að mikil aukning hafi orðið á skipulagðri glæpastarfsemi á Norðurlöndum frá því samningurinn tók gildi og það tengist einkum glæpastarfsemi í Eystrasaltsríkjunum.

Egil Haaland, formaður norska lögreglufélagsins, segir í viðtali við eistneska blaðið Posteemes í dag, að glæpamenn frá Eystrasaltslöndunum þremur, Eistlandi, Lettlandi og Litháen, beri ábyrgð á miklum meirihluta þeirra glæpa sem framdir eru á Norðurlöndunum.

„Opin landamæri í Evrópu hafa leitt til þeirrar stöðu, að 80% glæpa, sem framdir eru í Noregi og á öðrum Norðurlöndum, tengjast glæpamönnum sem annaðhvort eru frá Eystrasaltslöndunum eða hafa tengsl við skipulagða glæpastarfsemi þar," sagði Haaland.

Hann vísaði í nýlegt bréf frá norsku lögreglunni til dómsmálaráðuneytis Noregs þar sem segir, að ef Eystrasaltslöndin grípi ekki til raunhæfra aðgerða gegn glæpamönnum, sem einnig fremja glæpi á Norðurlöndunum, verði að endurskoða Schengen-samninginn.

Posteemes dró yfirlýsingar Haalands í efa og vísaði til norskra afbrotaupplýsa því til stuðnings. Sagði blaðið, að ásakanir Haalands jöðruðu við kynþáttahatur.

Alls eiga 25 Evrópuríki aðild að Schengen-samningnum, 22 aðildarríki Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs og Sviss.  Um er að ræða samstarf á sviði landamæraeftirlits og löggæslu  sem á að auðvelda ferðir fólks innan Schengensvæðisins með því að afnema  vegabréfaskoðun á innri landamærum þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert