Bókun hefur ekki borist
Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, kveðst í yfirlýsingu ekki hafa séð bókun sem nefndarmenn Sjálfstæðisflokksins boðuðu vegna orða sem féllu milli Þráins Bertelssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
Hún segir að bókunin verði að sjálfsögðu færð í fundargerð nefndarinnar.
Fram kom m.a. á vefmiðlinum Eyjunni í dag að fundi Þingvallanefndar á fimmtudaginn var hafi lokið með því að Þráinn Bertelsson hafi kallað þær Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur „fasistapakk“.
Þær hafi þá lagt fram bókun þess efnis að nefndin sé ekki starfhæf nema Þráinn biðjist afsökunar á fáheyrðri framkomu sinni.
Yfirlýsing Álfheiðar er svohljóðandi:
„Yfirlýsing.
Núverandi Þingvallanefnd hefur á starfstíma sínum tekist að vinna að framgangi margra heillavænlegra mála sem varða framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum og hefur nefndin verið samstíga um allar stærstu ákvarðanir.
Fundur í Þingvallanefnd s.l. fimmtudag hefur að ósekju dregist inn í umræður um deilur og stóryrði sem fallið hafa milli þingmannanna Þráins Bertelssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Þau ágreinings- og deiluefni snúa hins vegar ekki að starfsemi Þingvallanefndar og snerta ekki þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Þegar tilvitnuð orð Þráins féllu hafði fundi Þingvallanefndar þegar verið slitið. Meginefni fundarins var að hefja undirbúning að endanlegum frágangi kringum hliðargjá sem opnaðist í Almannagjá í lok mars, tryggja öryggi gesta þjóðgarðsins og hindra frekari eyðileggingu í gjánni. Á fundinn kom Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur sem lýsti sinni sýn á því sem þarna gerðist. Umræður voru eins og venja er málefnalegar og leiddu til niðurstaðna sem allir nefndarmenn styðja, m.a. um að nýta þetta tækifæri til að auka fræðslugildi Þingvalla.
Á fundinum var einnig skipað í dómnefnd vegna Hugmyndaleitar meðal almennings um Þingvelli og þjóðgarðinn. Fram voru lagðir tveir listar og hlaut A-listi 4 atkvæði, B-listi 2 atkvæði en einn fulltrúi í nefndinni sat hjá. Það er því ekki rétt að greidd hafi verið atkvæði með eða á móti tilteknum einstaklingum á fundi nefndarinnar.
Undirrituð hefur ekki séð bókun sem boðuð var frá nefndarmönnum Sjálfstæðisflokksins í Þingvallanefnd en hún verður að sjálfsögðu færð í fundargerð nefndarinnar eins og venja stendur til.
Reykjavík 7. maí 2011
Álfheiður Ingadóttir.“
Bloggað um fréttina
-
Þorsteinn H. Gunnarsson Þjóðgarðurinn á Þingvöllum -
Axel Jóhann Hallgrímsson Hvernig er það... -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Við skulum vona að ekki hafi verið höfðað til og ... -
Sveinn Egill Úlfarsson Helgrindarhirðin
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 9. maí 2011, Innlent Óstarfhæf nefnd án afsökunarbeiðni
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Innlent Þiggja ekki húsið á Kárastöðum
- Miðvikudagur, 11. maí 2011, Innlent Vilja hugmyndir almennings
- Þriðjudagur, 21. júní 2011, Innlent Hugmyndaleit um þróun Þingvallaþjóðgarðs
- Laugardagur, 13. ágúst 2011, Innlent Hugmyndaleit kynnt á Þingvöllum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































