Gos að hefjast i Grímsvötnum
Allt bendir til þess að eldgos sé að hefjast við Grímsvötn. Greinilegur gosórói kom fram á mælum Veðurstofunnar um kl. 18. „Það bendir allt til þess að það sé að hefjast eldgos á þessu svæði,“ sagði Hjörleifur Sveinbjörnsson jarðfræðingur á Veðurstofunni.
Hjörleifur sagði að óróinn kæmi fram á mælum Veðurstofunnar víða um land og bæri þess öll merki að gos væri hafið. „Þetta er dæmigerð gosóróahegðun.“
Jarðfræðingar hafa búist við gosi í Grímsvötnum allt þetta ár og því kemur gosið ekki á óvart. Hjörleifur sagðist ekki hafa nákvæmar upplýsingar um hversu mikið vatn væri í sigkatlinum í Grímsvötnum. Hann sagði að búast mætti við flóði niður á Skeiðarársand í kjölfar goss. Menn ættu hins vegar eftir sjá að betur staðsetninguna á gosinu áður en hægt væri að meta hvenær jökulflóð hefst.
Hjörleifur sagði að búið væri að virkja viðbúnaðarkerfi. „Það er allt farið í gang eins og um gos sé að ræða. Það er búið að senda viðvörun út til Englands þannig að flugrekendur geti breytt flugi.“
Tilkynning barst frá Almannavörnum um kl. 19. Þar segir: „Nú á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos
gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í
Vatnajökli.
Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið vikjuð vegna þessa.
Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast.“
Bloggað um fréttina
-
Guðlaugur Hermannsson Vonandi dregur þetta ekki úr fjölda ferðamanna til Íslands í ... -
Ásdís Sigurðardóttir HEIMSENDIR - nei ÍSLAND í dag.
Innlent »
- Kvöddu veturinn með skíðamóti
- Fara vel yfir mál kynbótadómarans
- 400 milljarða uppsafnaður ríkissjóðshalli
- Í launalausu leyfi frá þingstörfum
- Svifvængjaflugmaður á batavegi
- Fékk skautbúning Margrétar til varðveislu
- Kviknaði í pitsukössum
- Tekin á 146 kílómetra hraða
- Loksins endurbætur á Þverárfjallsvegi
- Stálu 600 lítrum af olíu
- Tæplega 4.900 hafa skrifað undir
- Meintur ökuníðingur ófundinn
- Sigurður loksins kominn heim í Vigur
- Fært inn í Landmannalaugar
- Brutust inn í mannlausa íbúð
- Methúsalem Þórisson látinn
- Vilja efla heilbrigðis-, velferðar- og menntamál
- Kujan tekur á rás á ný
- 100 sóttu um 9 störf
- 83% brottfara á áætlun
- Ísland til eftirbreytni
- Jón Hilmar Hallgrímsson látinn
- Lögga í skotvesti á hjólabretti
- Framkvæmdir á Sæbraut
- Kvennamessa á kvenréttindadaginn
- Herjólfur siglir í Landeyjahöfn
- Allt að 18 stiga hiti
- Hreinlæti oft verulega ábótavant
- Óvissa með siglingar Herjólfs
- Dópaður ökumaður stakk af
Mánudagur, 17.6.2013
- Lenti í íslenskum hálendisrudda
- Sólrík Akureyri á þjóðhátíð
- Kátir krakkar með sleikjósnuð
- Sjaldgæfir gestir hér við land
- Brotlending við Sultartangalón
- Eins og að róa daglega til fiskjar
- Hlaut minniháttar brunasár
- Álftin á Hrísatjörn komin með unga
- Retro Stefson tryllti lýðinn
- Mikið spólað á götum á Akureyri
- Skemmtibátur kominn í höfn
- Sigurbjörg bæjarlistamaður
- Barn brenndist á veitingastað
- Gleði og fjör á Arnarhóli
- Rostungur flatmagar á Reyðarfirði
- Skemmtibátur í vanda
- Tour de Hvolsvöllur í þriðja sinn
- Hinir síungu bæjarlistamenn
- „Nú er veður til að skapa“
- Sérstakar umræður um ríkisfjármál
- Varað við hvassviðri í kvöld
- Níu fengu fálkaorðuna 17. júní























