Átaksverkefni til aðstoðar fólki á öskuslóðum

mbl.is/Eggert

Sveitarfélögum verður boðið að ráða atvinnuleitendur og námsmenn til þess að sinna ýmsum störfum til aðstoðar fólki á áhrifasvæði eldgossins í Grímsvötnum.

Fram kemur á vef velferðarráðuneytisins að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hafi kynnt tillögu þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Ráðuneytið segir að efnt hafi verið til sambærilegs verkefnis vegna eldgossins í Eyjafjallajökli síðastliðið sumar en nokkuð hafi verið liðið á gosið þegar verkefnið hófst. Nú sé áhersla lögð á að hrinda verkefninu í framkvæmd sem allra fyrst, í samráði við aðgerðastjórn og sveitarfélög á svæðinu, svo aðstoðin komi að sem mestu gagni.

Fulltrúi velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar muni fljótlega funda með aðgerðastjórn og sveitarstjórum sveitarfélaga þar sem áhrif gossins séu hvað mest til að meta þörf fyrir aðstoð og ræða framkvæmd verkefnisins.

Laun þeirra sem ráðnir verði til verkefnisins verða samkvæmt kjarasamningum. Verkefnið verði fjármagnað með framlögum úr ríkissjóði og úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt reglum um átaksverkefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert