Gylfi í stjórn OR

Gylfi Magnússon, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
Gylfi Magnússon, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Golli

Gylfi Magnússon, fyrrverandi ráðherra, var í dag kosinn í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur  og tekur sæti Aðalsteins Leifssonar, sem hverfur úr stjórninni.

Borgarstjórn kaus í dag fulltrúa í stjórn OR. Haraldur Flosi Tryggvason var endurkjörinn formaður stjórnarinnar og tekur hann nú jafnframt sæti sem einn af fimm stjórnarmönnum.

Akraneskaupstaður og Borgarbyggð eiga eftir að kjósa fulltrúa þessara sveitarfélaga í stjórnina, skv. upplýsingum sem fengust á skrifstofu borgarstjóra. 

Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir í stjórn orkuveitunnar en þau eru Brynhildur Davíðsdóttir, Kjartan Magnússon og Sóley Tómasdóttir.

Varamenn í nýrri stjórn orkuveitunnar eru Ingrid Kuhlman, Elín Blöndal, Reginn Mogensen, Júlíus Vífill Ingvarsson og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. 

Ný stjórn tekur til starfa á aðalfundi ORsem verður haldinn 23. júlí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert