Díoxín undir mörkum
Díoxín reyndist alls staðar vera undir mörkum á þeim stöðum sem Umhverfisstofnun tók sýni úr jarðvegi í maímánuði. Forsaga málsins er sú að díoxín mældust yfir mörkum í lok desember 2010 í mjólk í Skutulsfirði í nágrenni við sorpbrennsluna Funa.
Umhverfisstofnun lagði þá þegar í byrjun janúar til við umhverfisráðuneytið að eldri sorpbrennslum yrði gert að uppfylla hertari skilyrði um losun mengandi efna sem giltu fyrir nýrri sorpbrennslur.
Einnig var ákveðið að taka sýni í nágrenni við allar hugsanlegar uppsprettur díoxína, s.s. sorpbrennsla, stóriðju og áramótabrenna. Sýni voru tekin eftir að frost fór úr jörðu og send erlendis til greiningar.
Tekin voru 50 sýni af jarðvegi út um allt land, 27 sýni í nágrenni sorpbrennsla bæði starfandi og aflagðra, 10 í nágrenni iðnfyrirtækja, 4 sýni úr jarðvegi í brennustæðum og 9 viðmiðunarsýni. Einnig var tekið sýni úr sjávarseti í Skutulsfirði (í nágrenni við brennslustöð) og úr sjávarseti úr Álftafirði til viðmiðunar.
Sýnatakan fór fram seinnihluta maí mánaðar. Sum sýni á Suðurlandi voru tekin þar sem aska frá gosinu í Grímsvötnum lá yfir sýnatökustað. Greiningar á öskunni sýna að hún hefur engin áhrif á niðurstöður, að því er fram kemur á vef Umhverfisstofnunar.
Á heildina litið er niðurstaða mælinganna sú að díoxín í jarðvegi er í öllum tilvikum undir þeim mörkum sem kalla á takmarkanir á nýtingu, hreinsun jarðvegs eða geta skapað hættu fyrir almenning og lífríki. Almenningur þarf ekki að hafa áhyggjur af því að rækta í jarðvegi, tína ber eða nýta aðrar náttúruafurðir. Búið er að loka sorpbrennslunni Funa og mun því ekki verða meiri uppsöfnun á díoxínum í jarðvegi af hennar völdum.Draga þarf úr losun díoxíns við sorpbrennslu í Eyjum
Við sorpbrennsluna í Vestmannaeyjum mældist styrkur díoxína í jarðvegi á bilinu 5-40 pg/g og því þarf að mati Umhverfisstofnunar að draga úr losun díoxína þar til að koma í veg fyrir frekari uppsöfnun.
Á tveimur brennustæðum, í Vestmanneyjum og Skutulsfirði, mældist styrkur díoxína í jarðvegi á bilinu 5-40 pg/g og mun Umhverfisstofnun beina þeim tilmælum til heilbrigðisnefnda að efniviður brennanna sé þannig að sem minnst verði til af díoxínum við brunann.
Innlent »
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Díoxín í jarðvegi undir hættumörkum
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Taka sýni við álver og við áramótabrennur
- Mánudagur, 18. júlí 2011, Innlent Tilraun með beit í Skutulsfirði
- Fimmtudagur, 13. janúar 2011, Innlent Vill stjórnsýsluúttekt vegna díoxíns
- Föstudagur, 1. apríl 2011, Innlent Markaðssetning búfjárafurða ekki viðunandi
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































