Auðlindanefnd skipuð
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd um stefnumörkun ríkisins í auðlindamálum. Á nefndin að skila skýrslu til ríkisstjórnarinnar fyrir 1. desember.
Ríkisstjórnin samþykkti í maí sameiginlega tillögu forsætisráðherra og fjármálaráðherra um að skipa nefnd til að setja fram tillögur um almenna stefnu sem lögð verði til grundvallar gjaldtöku fyrir nýtingu á auðlindum þjóðarinnar og annarra takmarkaðra gæða, umsýslu þessara réttinda og meðferð tekna sem hún skapar.
Nefndina skipa eftirtalin:
Arnar Guðmundsson, formaður, tilnefndur af forsætisráðherra
Indriði H.
Þorláksson, tilnefndur af fjármálaráðherra
Svanfríður Jónasdóttir, tilnefnd
af efnahags- og viðskiptaráðherra
Gunnar Tryggvason, tilnefndur af
iðnaðarráðherra
Bjarni Harðarson, tilnefndur af sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af umhverfisráðherra.
Hlutverk nefndarinnar er í fyrsta lagi að setja fram almenna og heildstæða stefnumörkun varðandi ráðstöfun nýtingarréttar á auðlindum og ráðstöfun ýmissa réttinda sem ríkið ræður yfir, svo sem nýtingarréttar á þjóðlendum, vatnsafli, jarðvarma, ferskvatni, fiskistofnum, fjarskiptatíðnum, námum og kolvetnum í jörðu, auk losunarheimilda, en hún þarf jafnframt að vera þannig að hægt sé að útfæra hana með sértækari hætti fyrir einstök málefnasvið.
Við vinnu sína skal nefndin vinna út frá þeim forsendum að nýtingarrétti auðlinda í eigu þjóðarinnar skuli aldrei úthlutað nema tímabundið, gegn gjaldi og með gegnsæjum hætti á grundvelli jafnræðissjónarmiða.
Í öðru lagi er nefndinni ætlað að móta almenna stefnumörkun um ráðstöfun þess arðs sem hlýst af nýtingu auðlindanna og hinna takmörkuðu gæða. Skal stefnumörkunin byggja á að sú ráðstöfun sé vel skilgreind, sýnileg og skipt með réttlátum hætti.
Í þriðja lagi skal nefndin marka stefnu um umsýslu framangreindra réttinda og
arðs af nýtingu þeirra. Er nefndinni ætlað að greina og leggja mat á hvort færa
eigi á eina hendi innan stjórnsýslunnar, og þá eftir atvikum í ráðuneyti eða
stofnun, forræði yfir og ráðstöfun þeirra auðlinda og réttinda sem hér um ræðir
og fallið gætu undir Auðlindasjóð.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Yfirgengileg hræsni Jóhönnu ! -
Haraldur Haraldsson Auðlindanefnd skipuð /Ja hérna er það nú nefndir á nefdir ... -
Jóhann Elíasson Á NÚ ENDANLEGA AÐ "SVÆFA" MÁLIÐ??????????????????????? -
Ólafur Ragnarsson "nægir peningar"
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. janúar 2012, Innlent Vilja stofna auðlindasjóð
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Tæplega helmingur þjóðlendur
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Verðtrygging í nefnd
- Föstudagur, 5. ágúst 2011, Innlent Niðurskurður til þjóðkirkju í nefnd
- Mánudagur, 17. janúar 2011, Innlent Afnotaréttur verði til „hóflegs tíma“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































