Sauðfjárbændur svara Gylfa

Íslenskt lambakjöt. stækka

Íslenskt lambakjöt. Picasa 2.7

Landssamtök sauðfjárbænda hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, um að neytendur eigi að sniðganga lambaakjöt hækki það um 25% í haust.

„Gylfi Arnbjörnsson forseti og framkvæmdastjóri ASÍ setur fram stórkarlalegar og öfgakenndar yfirlýsingar í  Fréttablaðinu í dag. Hann gengur þar svo langt að hvetja innlenda neytendur til þess að sniðganga lambakjöt. Að sögn er það  vegna þess að í gær gáfu Landssamtök sauðfjárbænda (LS) út nýja viðmiðunarverðskrá fyrir lambakjöt þar sem gert er ráð fyrir 25% hækkun frá fyrra ári. LS telja af því tilefni rétt að vekja athygli á eftirfarandi:

Sauðfjárbændur hafa tekið á sig verulegar aðfangahækkanir undanfarin ár.  Áburðarverð hefur þrefaldast, olía ríflega tvöfaldast og rekstrarkostnaður í heild hækkað um rúm 170% frá 2005.  Þessa hefur ekki gætt í afurðaverði til bænda, né verði til neytenda.  Samkvæmt mælingum Hagstofunnar hefur smásöluverð lambakjöts hækkað um 36% en almennt verðlag um 56% á þessu sama tímabili (frá 2005). Raunverð til neytenda hefur því lækkað verulega án þess að ASÍ hafi séð ástæðu til að benda á það.  

Sauðfjárbændur selja allt sitt kjöt á einu og sama verðinu í sláturtíðinni á haustin og verðbreytingar sem verða á markaði innanlands eða erlendis fram til þeirrar næstu skila sér ekki til þeirra.  Viðmiðunarverðskráin er bara sett fram einu sinni á ári og sú sem birt var í gær gildir fram á haust 2012.   Meðalverð sem bændur fengu árið 2010 var rúmar 420 krónur á kíló af lambakjöti en tæpar 120 krónur á kíló fyrir annað kindakjöts.   Bændur fá ekkert  greitt fyrir gærur, innmat eða sviðahausa en greiða ekki fyrir flutning á sláturfé í staðinn.

Sauðfjárbændur telja sig hafa sett fram málefnalega kröfu um afurðaverðshækkun á komandi hausti.  Það er ekki síst vegna þess að vel hefur gengið á erlendum mörkuðum og verð þar farið hækkandi bæði á kjöti, gærum og öðrum hliðarafurðum.  Þess vegna teljum við að útflutningurinn geti borið verulegan hluta af þessari hækkun til bænda, en ekki er sjálfgefið að hún þurfi að fara beint út í verðlagið hér innanlands.  Hækkunin er ekki sett fram til að reyna að hækka verð innanlands til samræmis við verð til bænda erlendis, enda yrði það talsvert meiri hækkun.

Þá er rétt að ítreka að viðmiðunarverðskrá sauðfjárbænda er ekki bindandi fyrir afurðastöðvar og undanfarin ár hafa bændur ekki fengið greitt í samræmi við hana.  Markaðurinn ræður verðinu á öllum stigum.  Við setjum verðskrána einfaldlega fram því við teljum kröfuna málefnalega. Við erum að setja fram hvað við viljum fá fyrir okkar vöru,  eins og lög heimila,  en vald okkar nær ekki lengra. ASÍ teldi það sennilega ósanngjarnt að kjör væru ákveðin þannig að sambandið setti fram launakröfur og síðan væri það atvinnurekenda að ákveða hvort að þeir færu eftir þeim.

Fjölmargir félagsmenn ASÍ vinna við úrvinnslu á lambakjöti og öðrum landbúnaðarafurðum.  Ef forseti sambandsins telur þau störf engu máli skipta þá ætti hann e.t.v. að íhuga hvort hann er á réttri hillu. Það er í sjálfu sér ágætt ef forseti ASÍ hyggst láta verðlagsmál meira til sín taka, en það verður að gera kröfu um að það sé ekki gert með þeim öfgakennda, ómálefnalega og ósanngjarna hætti sem hann gerir í Fréttablaði dagsins," segir í yfirlýsingu sauðfjárbænda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
N.P. ÞJÓNUSTA
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Hafið samband í...
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin er 8GB armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 18.750,- Góð dæ...
 
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...