Skjálftahrina í Kötlu

15 eftirskjálftar mældust á 25 mínútum í kjölfar stóra skjálftans …
15 eftirskjálftar mældust á 25 mínútum í kjölfar stóra skjálftans í Kötlu. Veðurstofa Íslands

Skjálfti af stærðinni 3,8 stig varð rétt upp úr klukkan tvö í nótt í Mýrdalsjökli. Í kjölfarið fylgdu 15 eftirskjálftar á 25 mínútna kafla, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Stærsti skjálftinn reið yfir klukkan 02:02:27 og í kjölfar eftirskjálftanna 15 gekk óróinn niður. Að sögn Hjörleifs Sveinbjörnssonar jarðfræðings á Veðurstofu Íslands hafa jarðskjálftastöðvar í kringum Mýrdalsjökul hafa ekki mælt neinn óróa sem gefur til kynna að um frekari hræringar séu í vændum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert