18,5 milljóna neyðaraðstoð

Mikil neyð hefur skaðast í Sómalíu.
Mikil neyð hefur skaðast í Sómalíu. Reuters

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita 18,5 milljónum króna til neyðaraðstoðar í austanverðri Afríku. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, lagði fram tillögu um þetta á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Neyðarástand hefur skapast í austanverðri Afríku, einkanlega í Sómalíu, vegna hungursneyðar af völdum uppskerubrests í kjölfar þurrka og ófriðar. Fjöldi flóttamanna hefur farið yfir landamærin frá Sómalíu til Kenýu.

Utanríkisráðuneytið hefur upplýst samstarfshóp íslenskra félagasamtaka um að fjárstyrkur allt að 12,5 milljónir króna verði veittur til verkefna vegna þessa neyðarástands. Umsóknarfrestur er til föstudags 22. júlí.

Ákall um framlag hefur borist frá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) vegna hjálparstarfs hennar í Sómalíu og hefur verið ákveðið að 50 þúsund Bandaríkjadalir (um 6 milljónir króna) verði veittir til þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert