„Fátt hefur komið verr við mig“

Fjölmargir hafa lagt leið sína í norska sendiráðið í dag til að votta þeim sem létust í árásunum í Útey og Osló, á föstudaginn var, virðingu sína. Fólk er slegið yfir atburðunum og er greinilegt að Íslendingar hugsa hlýtt til Norðmanna.

Minningarbók sem fólk getur skrifað kveðju í mun liggja frammi í sendiráðinu á Fjólugötu 17 í Reykjavík á morgun þriðjudag og á miðvikudag frá kl. 10–12 og frá kl. 14–16. 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert