Múffurnar lutu í lægra haldi

Múffurnar voru margvíslegar að gerð og lit á basarnum sem …
Múffurnar voru margvíslegar að gerð og lit á basarnum sem var haldinn í Lystigarðinum á Akureyri í fyrra. mbl.is/Helga

Vel heppnaður múffubasar – Mömmur og muffins – var haldinn í Lystigarðinum á Akureyri í fyrrasumar. Um 1.000 kökur seldust og rann ágóðinn, 400.000 krónur, óskiptur til fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri.

Til stóð að endurtaka leikinn nú á laugardag en aðstandendum Mamma og muffins var tilkynnt af heilbrigðisyfirvöldum að ekki væri heimilt að selja heimabakaðar kökur á slíkum basar.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segja heilbrigðisyfirvöld að hreinlætissjónarmið ráði því að ekki megi selja mat sem framleiddur er í heimahúsum. „Það er dapurlegt, í þessum sparnaði, að fólk megi ekki leggja sig fram sjálft,“ segir Auður Skúladóttir, einn af aðstandendum markaðarins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert