Segir vaxtahækkun skaðlega

Vilhjálmur segir að lokum að Samtök atvinnulífsins mótmæli harðlega þeirri …
Vilhjálmur segir að lokum að Samtök atvinnulífsins mótmæli harðlega þeirri vaxtahækkun seðlabankans nú í dag og hvetja bankann til þess að draga hana til baka strax við næstu vaxtaákvörðun. mbl.is/Kristinn

Seðlabanki Íslands hækkaði vexti nú í morgun um 0,25%. Spurður út í hækkun bankans segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins, að vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í dag gangi þvert gegn viðleitni til þess að auka fjárfestingar og hagvöxt í landinu.

„Vaxtahækkunin er því alröng skilaboð til fyrirtækja og heimila og gerir þeim erfiðara fyrir með að ná niður atvinnuleysi og bæta lífskjör almennings.“

Vilhjálmur segir að Seðlabanki Íslands hafi hækkað vexti þrátt fyrir að atvinnuleysið hafi verið 6,6% í júlí og að bankinn hafi spáð að atvinnuleysið yrði 7,1% á þessu ári.

Vilhjálmur segir að samkvæmt spá bankans verði atvinnulífið áfram í hægagangi og þrátt fyrir meiri bjartsýni um hagvöxt á þessu ári eða 2,8% aukningu landsframleiðslu í stað 2,3% í aprílspá hafi útlitið fyrir árið 2012 versnað mjög að mati bankans. „Bankinn spáir nú aðeins 1,6% aukningu landsframleiðslu á næsta ári meðan aprílspáin gerði ráð fyrir 2,9% hagvexti  á árinu 2012.“ 

„Þegar horft er fram á svo slakar horfur á árinu 2012, er því í senn ótrúleg og óhugguleg aðgerð að hækka vexti nú,“ segir Vilhjálmur og bætir við að vaxtahækkunin stuðli að því að kreppuástandið sem nú ríkir í íslensku atvinnulífi viðhaldist. 

Ennfremur segir hann rökstuðning seðlabankans um nauðsyn vaxtahækkunar á grundvelli aukinnar verðbólgu afar hæpinn þar sem verðlagshækkanir á fyrri hluta þessa árs eigi sér að stærstum hluta skýringu í þróun verðlags á erlendum mörkuðum og slöku gengi íslensku krónunnar. 

„Vaxtahækkun í því skyni að draga úr eftirspurn og vinna á þann hátt gegn verðbólgu er því beinlínis skaðleg nú þegar brýnasta verkefnið í efnahags- og atvinnumálum er að auka fjárfestingar í atvinnulífinu og innviðum samfélagsins,“ segir Vilhjálmur.

Hann bendir á að fjárfestingar á Íslandi séu hættulega litlar og ná engan veginn að uppfylla eðlilega endurnýjunarþörf atvinnulífsins og skapa sóknarfæri til framtíðar. „Seðlabankinn spáir engum raunverulegum breytingum þar á og langt í að fjárfestingarmarkmið kjarasamninganna í maí náist.“ 

Vilhjálmur segir að lokum að Samtök atvinnulífsins mótmæli harðlega vaxtahækkun seðlabankans nú í dag og hvetji bankann til þess að draga hana til baka strax við næstu vaxtaákvörðun.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert