Friðarsúlan tendruð í kvöld

Friðarsúlan í Viðey
Friðarsúlan í Viðey mbl.is/RAX

Ljós verða tendruð á friðarsúlunni í Viðey í kvöld til minningar um þá sem létust í árásunum í Útey og Osló 22. júlí síðastliðinn.

Dagskrá verður í Viðey frá klukkan hálfníu og borgarstjórinn, Jón Gnarr, flytur ávarp. Reykjavíkurborg vill með þessu senda samúðarkveðjur til Norðmanna og minnast þeirra sem létust í árásunum.

Ljós súlunnar mun loga frá sólsetri 21. ágúst og fram á morgun. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert