ESB hefur fallist á samningaleið Íslands

Ráðherrar á Alþingi.
Ráðherrar á Alþingi. mbl.is/Kristinn

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að í rýniskýrslu Evrópusambandsins um landbúnað í aðildarviðræðum við Ísland, væri fallist á það með formlegum hætti, að Íslendingar noti þá samningaleið sem þeir hefðu ákveðið að fara.

„Það felst í því, að aðlaga ekki reglur, ekki lög og ekki stofnanir að Evrópusambandinu fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þegar fyrir liggur jáyrði. Þetta liggur fyrir þarna svart á hvítu," sagði Össur og bætti við að þingmenn Framsóknarflokksins þyrðu ekki í málefnalegar umræður um Evrópusambandið.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hafði fyrr í umræðu um störf þingsins  sagt, fram hefði komið á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar þingsins um miðjan ágúst, að enginn vissi hvar verið væri að vinna að samningsmarkmiðum Íslands í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. 

Vill setja niður deilur í Framsóknarflokki

Össur sagðist vilja bera á móti því á að hann hefði vildi ekki mæta til funda við þær þingnefndir, sem óskuðu eftir því en Sigurður Ingi gagnrýndi að erfitt væri að fá fundi í nefndum þingsins um aðildarviðræðurnar.

„Það hefur enginn utanríkisráðherra komið jafnoft til fundar við utanríkismálanefnd og ég. Það hefur enginn utanríkisráðherra í sögunni óskað eftir því jafnoft og ég að fá að koma á fund utanríkismálanefndar til þess að skýra sín mál," sagði Össur.

Hann sagði að þingmenn Framsóknarflokksins ættu að einbeita sér að sínum flokki, sem einmitt vegna Evrópusambandsmálsins væri nú klofinn í rót niður, hefði misst eitt efnilegasta forustumannsefni sitt út af þessu máli og þar væri allt upp í loft.

„Ég held frekar að háttvirtir þingmenn ættu að koma til mín og leita liðsinnis við að setja niður deilur deilur um Evrópusambandið í þeirra flokki. Mér hefur tekist yfirleitt þegar koma upp deilur að setja þær niður og ég býð mig fram sem sjálfboðaliði til að hjálpa Framsóknarflokknum til að  komast aftur upp á lappirnar í þessu máli," sagði Össur.

Ósannindi

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag, að ekki hefði orðið við beiðni, sem lögð var fram fyrir tveimur mánuðum um opna fundi í utanríkismálanefnd Alþingis um stöðu aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið.

Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður utanríkismálanefndar, sagði að samkomulag hefði náðst um hvernig þessum opnu fundum yrði háttað. Engin undirmál væru þar frekar en annarstaðar í samningaviðræðunum við Evrópusambandið. Það væri sama hve Ásmundur Einar segði oft í ræðustóli að það hvíldi leynd yfir aðildarviðræðunum. „Það er eitt orð yfir þær staðhæfingar og það er, að þær eru ósannar," sagði Valgerður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert