Álfheiður formaður flokkahóps vinstri-grænna

Álfheiður Ingadóttir.
Álfheiður Ingadóttir. mynd/Magnus Fröderberg/norden.org

Álfheiður Ingadóttir alþingismaður var í dag kjörin formaður flokkahóps vinstri-grænna í Norðurlandaráði en ársfundur flokkahópsins var í Ósló í dag.

Í flokkahópi vinstri-grænna eru þingmenn Norðurlanda, Færeyja og Grænlands sem tilheyra átta flokkum. 

Siv Friðleifsdóttir alþingismaður var einnig kjörin formaður flokkahóps miðjumanna eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert