Páll ráðinn forstjóri Bankasýslu

Páll Magnússon.
Páll Magnússon.

Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogsbæjar, hefur verið ráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins. Hann tekur við starfinu af Elínu Jónsdóttur, sem gegnt hefur starfi forstjóra frá því að stofnunin hóf störf í byrjun árs 2010. 

Páll er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá Háskóla Íslands og hefur gegnt stöðu bæjarritara hjá Kópavogsbæ og verið sviðsstjóri stjórnsýslusviðs bæjarins frá árinu 2006. Hann hefur jafnframt verið staðgengill bæjarstjóra. Páll var aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra á árunum 1999-2006, sat í stjórn Landsvirkjunar árin 2007-2011, þar af sem stjórnarformaður í eitt ár. Þá var hann varaformaður útvarpsráðs og síðar stjórnar RÚV ohf. um fimm ára skeið.

Páll er kvæntur Aðalheiði Sigursveinsdóttur og eiga þau tvo syni.

Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármálaráðherra. Stofnunin fer með eignarhluti ríkisins í fjármálastofnunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert