Valt á hliðina á Háteigsvegi

Slökkviliðsmenn koma bílnum aftur á réttan kjöl.
Slökkviliðsmenn koma bílnum aftur á réttan kjöl. Ljósmynd/Pressphotos.biz

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á gatnamótum Lönguhlíðar og Háteigsvegar í kvöld og velti bílnum. Hann er grunaður um ölvun við akstur.

Óhappið varð upp úr klukkan hálfníu í kvöld. Jepplingur sem maðurinn ók lenti utan í tveimur kyrrstæðum bílum áður en hann hafnaði á hliðinni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi sjúkrabíl og dælubíl á staðinn. Maðurinn reyndist óslasaður en lögreglan tók hann í sína vörslu. Hann verður yfirheyrður í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert