Úrin úr ráninu fundin
Lögreglan í Reykjavík hefur fundið úrin sem rænt var úr verslun Michelsen á Laugavegi í síðustu viku. Þrír vopnaðir menn ruddust þá inn í verslunina og létu greipar sópa. Ræningjarnir komust undan með umtalsvert magn af þýfi, svo sem Rolex-, Tudor- og Michelsen-úr að andvirði 50-70 milljóna króna, að talið er, en þau hafa nú verið endurheimt.
Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú fyrir stundu, þar sem ránsfengurinn er til sýnis. Einn maður hefur verið handtekinn vegna ránsins en þrír aðrir sem grunaðir eru um aðild komust úr landi strax á fyrsta sólarhringnum eftir ránið að sögn lögreglu. Mennirnir eru allir pólskir og voru ekki búsettir á Íslandi. Lögregla veit ekki til þess að þeir hafi komið hingað til lands áður. Talið er að þeir hafi komið hingað gagngert til að fremja ránið og dvalið hér í um það bil viku til undirbúnings áður en þeir létu til skarar skríða. Lögregla hefur borið kennsl á alla mennina og unnið er að því að handsama þá þrjá sem sluppu úr landi.
Ítarleg leit var gerð að ræningjunum og þýfinu eftir að tilkynning barst um ránið á 11. tímanum á mánudagsmorgun. Var landamæragæsla meðal annars hert í kjölfarið vegna gruns um að ræningjarnir kynnu að flýja úr landi með ránsfenginn.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Antonsson Sigur fyrir lögreglu -
Skúli Víkingsson Afleiðingar Schengen -
Viggó Jörgensson Og miljónin þá til lögreglunnar? -
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. nóvember 2011, Innlent Rolex-úrin rjúka út
- Miðvikudagur, 19. október 2011, Innlent Með myndir af ræningjunum
- Mánudagur, 17. október 2011, Innlent „Get down, get down“
- Miðvikudagur, 26. október 2011, Innlent Ekki komið til Íslands áður
- Mánudagur, 7. nóvember 2011, Innlent Handteknir en látnir lausir
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































