Minnst tvær hópuppsagnir í október

Flestar hópuppsagnir á árinu 2011 eru í mannvirkjagerð.
Flestar hópuppsagnir á árinu 2011 eru í mannvirkjagerð. mbl.is/Skapti

Vinnumálastofnun hafa borist tvær hópuppsagnir fyrir októbermánuð 2011. Um er að ræða uppsagnir í byggingariðnaði og upplýsingatækni. Alls missir á sjöunda tug manna vinnuna í þessum tveimur uppsögnum. Frestur til að tilkynna hópuppsögn í október rennur út í dag og gæti því enn bæst við.

Alls hafa tæplega 700 manns nú misst vinnuna í hópuppsögnum á árinu 2011. Flestar eru uppsagnirnar í mannvirkjagerð en næstflestar í fræðslustarfsemi og verslun.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert