Fjármál heimilanna forgangsmál

Frá landsfundi Sjálfstæðisflokkssins í Laugardalshöll.
Frá landsfundi Sjálfstæðisflokkssins í Laugardalshöll.

Sjálfstæðisflokkurinn vill færa niður höfuðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána. Segir í ályktun landsfundar flokksins um fjármál heimilanna, sem samþykkt var í dag, að þessi aðgerð og önnur endurskipulagning skulda heimilanna sé forsenda fyrir auknum hagvexti og framtíðaruppbyggingu íslensks þjóðfélags.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að um 200 manns hefðu tekið þátt í starfi nefndar, sem fjallaði um ályktunina á landsfundinum og skilaboðin væru þau  að þetta væri mikilvægasta mál landsfundarins. „Fjármál heimilanna eru forgangsmál hjá Sjálfstæðisflokknum," sagði Guðlaugur.

Þá sagði hann að í ályktuninni væri sleginn nýr tónn um að dregið yrði úr verðtryggingu þótt ekki væri lagt til að hún yrði bönnuð. Í ályktuninni segir m.a. að verðtrygging neytendalána eigi  ekki að vera valkostur í nútímasamfélagi.

Ályktun um fjármál heimilanna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert