Á ekki lengur samleið með Framsókn

Kristbjörg Þórisdóttir
Kristbjörg Þórisdóttir

Kristbjörg Þórisdóttir lét í dag af störfum sem formaður Landssambands framsóknarkvenna og sagði sig í kjölfarið úr Framsóknarflokknum, á miðstjórnarfundi flokksins.

Kristbjörg segir ástæðuna fyrir úrsögn hennar úr flokknum fyrst og fremst þá að hún telji sig ekki lengur eiga samleið með Framsóknarflokknum. „Ég tel að til þess að byggja upp betra samfélag en það sem var hér fyrir hrun þurfi grundvallarbreytingar að eiga sér stað í íslenskum stjórnmálum sem og innan stjórnmálaflokkanna. Bæta þarf vinnubrögð þeirra, lýðræðisvæða þá, tryggja gagnsæi og gæta vel að mögulegum hagsmunatengslum. Einnig þurfa stjórnmálaflokkarnir að tryggja jafnræði beggja kynja í öllu starfi,“ segir í yfirlýsingu frá Kristbjörgu.

„Framsóknarflokkurinn hefur unnið mikið verk að ákveðnum breytingum. Ekki hefur þó verið gengið eins langt í grundvallarbreytingum og ég hefði viljað sjá.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert