Bjúgnakrækir og Ketkrókur á ferð

Þjófarnir voru líklega að láta sig dreyma um hangikjöt með …
Þjófarnir voru líklega að láta sig dreyma um hangikjöt með uppstúf og kartöflum. mbl.is/Eyþór

Tveir menn um þrítugt reyndu að stela fullri innkaupakerru af matvöru, aðallega dýrara kjöti, í Krónunni í Kópavogi klukkan rúmlega sjö í kvöld.

Mennirnir hlupu út með innkaupakerruna og sturtuðu í aftursætið á bíl sínum og stungu af. Þeir náðust í bílnum ekki langt frá Krónunni og þá voru þeir búnir að troða hluta af fengnum í bakpoka.  Þeir eru nú báðir í haldi lögreglunnar.

Ekki fékkst staðfest hvort Bjúgnakrækir og Ketkrókur eru komnir til byggða heldur fyrr en vanalega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert