Allt á kafi í snjó í Grindavík

Snjó mokað í Grindavík í morgun. Myndin er af vef …
Snjó mokað í Grindavík í morgun. Myndin er af vef bæjarins.

Grindavíkurbær er á kafi í snjó en þar hefur snjóað látlaust síðan í gær. Á vef bæjarins segir, að snjóruðningstæki hafi ekki undan og mokað hafi verið nánast í alla nótt. Alls séu 5-6 tæki í snjómokstri. Bílar voru fastir víða um bæinn í morgun.

Lögð hefur verið áhersla á að halda helstu umferðargötum opnum þannig að fært sé að Grindavíkurvegi, skólum, leikskólum, slökkviliðsstöð, heilbrigðisstofnun, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert