Birta stefnu gegn Íslandi

Icesave-bollinn sígildi.
Icesave-bollinn sígildi. Ómar Óskarsson

Utanríkisráðuneytinu hefur í dag verið birt stefna Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í meintu samningsbrotamáli vegna ábyrgðar á lágmarkstryggingu á Icesave-reikningunum. Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins að uppbygging stefnunnar sé „að öllu leyti hefðbundin“. Íslensk stjórnvöld fá frest til 20. febrúar nk. til að skila greinargerð.

„Í fyrri hluta eru rakin málsatvik, lagarök og meðferð málsins fram til þessa, en seinni hlutinn snýr að málsástæðum ESA fyrir kröfu sinni um að Ísland verði af hálfu dómstólsins lýst brotlegt við tilskipunina um innstæðutryggingar og jafnræðisreglu EES-samningsins,“ segir í tilkynningunni. Er stefnan svo sett í samhengi við málflutning ESA í Icesave-deilunni til þessa.

Íslensk stjórnvöld sökuð um mismunun

„Efni stefnunnar svipar í öllu verulegu til málflutnings ESA fram til þessa og er byggð á tveimur meginstoðum. Annars vegar að stjórnvöld hafi ekki fullnægt skyldu til að tryggja að tryggingakerfið, sem komið var á fót á grundvelli tilskipunar um innstæðutryggingar, gæti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart innstæðueigendum um greiðslu lágmarkstryggingar (e. obligation of result).

Hins vegar að stjórnvöld hafi mismunað innstæðueigendum í útibúum Landsbankans á Íslandi og annars staðar m.t.t. lágmarkstryggingarinnar með því að flytja eingöngu innlendar innstæður í nýja bankann. Þar með hefðu innlendar innstæður verið tryggðar að fullu meðan innstæður annars staðar hefðu ekki einu sinni notið lágmarkstryggingar. Í því væri fólgin óbein mismunun sem bryti í bága við jafnræðisreglu 4. gr. EES-samningsins.

Samkvæmt starfsreglum EFTA-dómstólsins hafa stjórnvöld nú tvo mánuði til að skila greinargerð í málinu, þ.e. til 20. febrúar nk.“

Hægt er að nálgast stefnu ESA í heild sinni hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert